Konunglegt eða Royal var þema árshátíðar Hafnarfjarðarbæjar þetta árið sem kristallaðist hvað best í konunglegum klæðaburði og stílhreinum og fallegum skreytingum. Hátíðin sameinar og hristir enn betur saman starfsfólk á öllum aldri frá rúmlega 70 starfsstöðvum víðsvegar um bæinn. Í ár rétt rúmlega 1500 manns. Rík áhersla var lögð á metnaðarfulla dagskrá og léttar og góðar veitingar og framreiðslu sem dansaði í takti við stemninguna í salnum. Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við öll völd á Ásvöllum um helgina og kom starfsfólk saman til að upplifa, syngja, dansa og skemmta sér. Árshátíðin 2024 var haldin á Ásvöllum laugardaginn 9. mars 2024.